Stökkva að meginefni

Hvað er Vindur Games?

Heil og sæl! Velkomin(n) á opinbera vefsíðu Vindur Games. Við erum hrikalega spenntir að hafa þig með! Lestu áfram ef þú vilt fræðast meira um okkur…

Vindur Games er óformlegur, lítill hópur sjálfstæðra leikjahönnuða sem elska að búa til tölvuleiki í frítíma sínum.

Ekkert sérlega fancy, kannski, en þetta er besta lýsingin sem mér datt í hug í bili. Af sökum fjölmargra tilrauna okkar ásamt hliðarsporum endum við á því að búa til marga smáa hluti: frumgerðir að tölvuleikjum, tónlistarbrot, gagnleg verkfæri fyrir leikjahönnun, bloggfærslur, og svo framvegis. Þessari síðu er ætlað að vera staður þar sem við getum deilt þessum dásamlegu hlutum með umheiminum. Það að þú sért að lesa þessa grein er sönnun þess að okkur hafi tekist það, svo takk fyrir 😊